Héragerði er sjálfstætt framhald Grísafjarðar sem var tilnefnd til barnabókaverðlauna Norðurlandaráðs, Íslensku bókmenntaverðlaunanna og var valin besta barnabók ársins af bóksölum landsins og Morgunblaðinu.. . Bókinni fylgja alls konar aukahlutir! Kíktu í vasann aftast til að svala forvitninni!. .
Lóaboratoríum: Nýjar rannsóknir hafa mögulega leitt eitthvað í ljós (New Research has Possibly Revealed Something)
Lóaboratoríum er rannsóknarstofa Lóu Hlínar teiknara og tónlistarkonu. Meðal viðfangsefna eru neyðarlegar uppákomur af ýmsu tagi, útlitsgallar, ýktur lífsstíll og margt fleira. Hér er nóg af húmor og næmni fyrir ýmsum kimum mannlífsins.