Opnunartími

Gröndalshús - menningarperla í Grjótaþorpi
Gröndalshús er viðburðahús og ekki opið gestum nema þegar viðburðir fara fram eða eftir samkomulagi.
Reglulega eru viðburðir í húsinu, svo sem upplestrar, stofutónleikar, smiðjur og fleira og eru þeir auglýstir á viðburðadagatali Bókmenntaborgarinnar.
Hægt er að panta leiðsagnir fyrir hópa allt árið um kring með því að senda póst á netfangið bokmenntaborgin@reykjavik.is.
Einnig er hægt að panta stofur Gröndalshúss fyrir fundi og viðburði eða falast eftir þeim fyrir upplestra, smiðjur og aðra menningarviðburði.
Sendið fyrirspurnir á netfangið bokmenntaborgin@reykjavik.is
Upplýsingar í síma: 411-6020.