Jump to content
íslenska

Í regnborg hljóðra húsa

Í regnborg hljóðra húsa
Author
Gunnar Hersveinn
Publisher
Höfundur
Place
Egilsstaðir
Year
1993
Category
Poetry

Úr Í regnborg hljóðra húsa:

Staldrað við í olíu

Nem staðar
í skógarmálverki
og heyri fuglabænir morgunsins.

Trén bylgjast
og regndropar falla.

Undir barðastóra hattinn
sest hunangsfluga á öxl mína
og járnsmiður skríður upp á skóinn.

Ég teygi út olíukennda hönd
gríp pensilinn af forviða málara

held svo för minni áfram ...

Næturþel

Hangi
í dimmum helli
dropar tímans
detta af húðinni

í kalt og djúpt tómið.

Myrkrið leikur um leðrið
strýkur langar klærnar.

Fell

í hyldjúpt blóðið.

 

More from this author

Öðlingurinn (A Noble Idea)

Read more

Gægjugat (Peephole)

Read more

Tré í húsi (Trees in a House)

Read more

Þjóðgildin (National Values)

Read more

Orðspor: gildin í samfélaginu

Read more

Sjöund

Read more

Ef (If)

Read more

Um það fer tvennum sögum: heimspekirit (Debatable: A Book of Philosophy)

Read more

Áar og niðjar Magnúsar og Sólveigar (The family of Sólveig and Magnús: Genealogy)

Read more